roofing

Réttindaskóli

Grunnskóli Borgarfjarðar hóf innleiðingaferli Réttindaskóla árið 2021 og hlaut fyrstu viðurkenningu haustið 2024. Stefnt er að næstu viðurkenningu haustið 2027.

Réttindaskólar byggja starf sitt á Barnasáttmálanum en hann felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu.

Réttindaskólar eru alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur borið mikinn árangur meðal annars í Bretlandi, Kanada og Norðurlöndum. Verkefnið felst í að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tekur á öllum þeim réttindum sem börn öðlast við fæðingu og hafa til átján ára aldurs.

Heimasíða Réttindaskóla UNICEF

Aðgerðaráætlun GBF
Kynning á skólanum (myndband)
Skýrsla Réttindaráðs Grunnskóla Borgarfjarðar (myndband)