roofing

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar. Ráðherra setur reglugerð um starfsemi skólaráða í samráði við samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra (8. gr. laga nr. 91/2008).

Skipan skólaráðs skólaárið 2023 – 2024 er sem hér segir:

Ingibjörg Adda Konráðsdóttir aðstoðarskólastjóri

Elísabet Halldórsdóttir fulltrúi kennara
Lára Kristín Gísladóttir fulltrúi kennara

Anna Sigríður Hauksdóttir fulltrúi starfsmanna

Erna Guðný Jónsdóttir fulltrúi foreldra Hvanneyri
Jónína Svavarsdóttir fulltrúi foreldra Kleppjárnsreykjum
Arnaldur Gunnarsson fulltrúi foreldra á Varmalandi

Sesselja Narfadóttir fulltrúi nemenda á Kleppjárnsreykjum
Jón Bjarni Guðmundsson fulltrúi nemenda á Varmalandi

FUNDIR SKÓLARÁÐS veturinn 2023-2024:

Fundur 6. nóvember 2023

Fundur 31. janúar 2024

Fundur 18. apríl 2024

Fundur 3. júní 2024