Foreldraráð
Í leikskólum skal vera starfrækt foreldraráð og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að stofnun þess og kosningu í ráðið. Foreldraráð er skipað a.m.k. þremur foreldrum og skal kosning fara fram í september ár hvert og kosið til eins árs í senn.. Ráðið setur sér starfsreglur sem það vinnur eftir og ber leikskólastjóra að vinna með ráðinu. Hlutverk foreldraráðs leikskóla er eftirfarandi:
- Gefa umsagnir til leikskóla og leikskólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir er varða starfsemi leikskólans
- Fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum
- Hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi
Í foreldraráði Uglukletts árið 2024-2025 eru eftirfarandi foreldrar:
- Íris Gunnarsdóttir
- Dagbjört Birgisdóttir
- Fannar Óli Þorvaldsson
- Bjarnheiður Jónsdóttir