roofing

Sérkennslustjóri Uglukletts er Ágústa Hrönn Óskarsdóttir. Ágústa er með B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum og auk þess með viðbótardiplómur í sérkennslufræðum og farsæld barna.

Sérkennslustjóri ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu ásamt því að veita ráðgjöf og miðla upplýsingum til annarra starfsmanna og foreldra/forráðamanna. Hann er í nánu samstarfi við sérfræðinga utan leikskólans, situr teymisfundi og einnig foreldrasamtöl sé þess óskað og hefur yfirumsjón með gerð einstaklingsáætlana og reglulegs endurmats á þeim.

Hægt er að óska eftir samtali við Ágústu í gegnum deildar-eða hópstjóra barns eða í gegnum netfangið agustahronn@borgarbyggd.is