Venjurnar 7
Venja 1 – Taktu af skarið
Taktu frumkvæði – þú hefur val
- Ég ræð sjálf/ur yfir mínu lífi
 - Ég ber ábyrgð á minni hamingju
 - Ég get valið hvernig ég bregst við og hvernig ég kem fram
 
- Ég vel hvað ég geri og stjórna skapi mínu
 - Ég ásaka ekki aðra fyrir mín mistök
 - Ég geri það sem er rétt, jafnvel þegar enginn sér
 
Venja 2 – Í upphafi skal endinn skoða
- Ég set mér markmið
 - Ég geri það sem ég tel að sé mikilvægt núna og fyrir framtíð mína – það skiptir máli
 - ÉG stoppa og hugsa áður en ég framkvæmi
 - Ég hugsa um jákvæðar og neikvæðar afleiðingar áður en ég framkvæmi
 - Ég er mikilvæg/ur og stuðla að betra andrúmslofti í skólanum
 
- Ég leita leiða til að vera góður félagi og vinur
 
Venja 3 – Forgangsraðaðu
- Ég nota tíma minn þannig að ég geri fyrst það sem er mikilvægast
 - Ég skipulegg mig og tileinka mér sjálfsaga
 
- Ég met hvað er mikilvægast að gera og í hvaða röð
 - Ég geri það sem er mikilvægast í sambandi við áætlanir mínar
 
Venja 4 – Sigrum saman
- Ég vil að öllum gangi vel
 
- Ég er glöð/glaður ef öðrum gengur vel
 - Ég hugsa í lausnum fyrir mig OG aðra
 - Ég bý yfir tillitsemi og kjarki til að finna sameiginlega lausn
 - Ef upp kemur ósætti eða vandamál leita ég leiða til þess að við getum sigrað saman
 
Venja 5 – Skilningsrík hlustun
- Ég reyni fyrst að skilja og geri mig svo skiljanlega/n
 - Ég hlusta á hugmyndir annarra
 - Ég reyni að sjá hlutina frá sjónarhóli annarra og skilja tilfinningar þeirra
 - Ég hlusta á aðra án þess að trufla
 
- Ég þori að deila skoðunum mínum á rólegan og yfirvegaðan hátt
 - Ég reyni að skilja sjónarhorn annarra og ber virðingu fyrir því
 - Ég hlusta með eyrum, augum og hjarta
 
Venja 6 – Samlegð
- Ég fagna ólíkum styrkleikum annarra og vil læra af þeim
 - Mér semur vel við aðra, einnig þá sem eru ekki eins og ég
 - Ég met fjölbreytileikann í hópnum
 - Ég hlusta á hugmyndir annarra og með því að vinna saman getum við fengið betri hugmyndir
 - Ég reyni ávallt að finna nýja sameiginlega valkosti
 
- Ég veit að saman getum við meira
 
Venja 7 – Ræktaðu sjálfa/n þig
Hugsaðu vel um sjálfan þig
- Ég leita í aðstæður þar sem ég eflist og byggist upp á jákvæðan hátt
 
- Ég borða rétt, þjálfa og fá nægan svefn
 - Ég ver tíma með fjölskyldu minni og vinum
 - Ég nýt þess að hjálpa fólki og hugsa um aðra
 - Ég tileinka mér hinar venjurnar og læri í hinum ýmsu aðstæðum