Borgarbyggð hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2025 verður eingöngu tekið við rafrænum reikningum. Einnig verður hætt að senda út reikninga til greiðenda á pappírsformi.
Markmiðið með breytingunni er m.a. að auka skilvirkni í skráningu, greiðslu reikninga og lágmarka villur. Er þetta hluti af þeirri vegferð sveitarfélagsins að verða pappírslaust fyrir árið 2027. Borgarbyggð er með þessu að taka þátt í þeirri tækniþróun og umhverfisstefnu sem lagt hefur verið upp með að sveitarfélög fylgi.
Innsending reikninga
Alla reikninga til Borgarbyggðar skal senda með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlun og vakin er athygli á að ekki er nægjanlegt að senda kröfu í banka. Vinsamlega ekki senda pappír samhliða rafrænum reikningum.
Við hvetjum sendendur reikninga til þess að huga að uppsetningu rafrænna lausna fyrir sinn rekstur ef þeir eru ekki nú þegar komnir með rafrænt bókhald. Mörg bókhaldskerfi bjóða uppá að senda reikninga með skeytamiðlun. Þjónustuaðilar fjárhagskerfa og skeytamiðlarar veita nánari upplýsingar um rafræna reikninga og hvaða leiðir eru í boði. Fyrir aðila sem eru ekki með bókhaldskerfi má benda á ýmsar veflausnir þar sem hægt er að skrá reikninga og senda rafrænt.
Nánari upplýsingar og þau gögn sem reikningar þurfa að innhalda má sjá hér.
Reikningar frá Borgarbyggð
Allir útgefnir greiðsluseðlar frá Borgarbyggð birtast í heimabanka greiðanda, hægt er að nálgast nánari upplýsingar um reikninginn undir Þjónustugátt á Borgarbyggd.is. með rafrænum skilríkjum.
Álagningarseðlar fasteignagjalda er að finna á mínum síðum á www.island.is eða í appi island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi.
Sé þess sérstaklega óskað er hægt að fá reikninga senda í pósti á pappírsformi.
Nánari upplýsinar um reikninga frá Borgarbyggð er að finna hér.
Allar nánari upplýsingar gefa starfmenn Borgarbyggðar – vinsamlega hafið samband á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Tengdar fréttir

Laus störf til umsóknar hjá Borgarbyggð
Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla. Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist …

Tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda í Kvíaholti
Vegna tengingar parhúss við Kvíaholt munu Veitur loka seinni gatnamótum Kvíaholts og Stöðulsholts. Lokunin er fyrirhuguð þriðjudaginn 28. apríl 2026 og áætlað er að gatnamótin opni aftur 30. apríl 2026 (með fyrirvara um breytingar). Við biðjum vegfarendur og íbúa að sýna þolinmæði og aðgát þegar farið er um svæðið meðan á framkvæmdum stendur.