22. september, 2026
Fréttir

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum kostur á að kynna sér fjölbreytta hreyfingu og íþróttastarf í sveitarfélaginu.

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og þátttaka er öllum opin.

Dagskrá vikunnar er meðal annars:

  • Frítt í opna tíma í íþróttamiðstöðinni
  • Opnar æfingar hjá barna- og ungmennastarfi aðildarfélaga UMSB
  • Vinavika hjá Metabolic
  • Frí Gusa hjá Völvusaunagusu fyrir 60+
  • Göngufótbolti
  • Virkniþing Borgarbyggðar – Kynningar á fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfi í héraðinu

Við hvetjum alla til að nýta tækifærið, mæta á viðburði vikunnar, prófa nýja hreyfingu og njóta þess að vera virk í góðum félagsskap.

Allir viðburðir vikunnar eru auglýstir á Facebook-síðu Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarbyggð

Taktu þátt í Íþróttaviku Evrópu og finndu þína hreyfingu!

Tengdar fréttir

18. september, 2026
Fréttir

Stjórnendur Borgarbyggðar efla færni í viðverustjórnun og leiðtogahlutverki

Sem liður í áframhaldandi þróun leiðtogafærni og markvissari viðverustjórnun hjá Borgarbyggð taka allir stjórnendur sveitarfélagsins þátt í vinnustofu undir leiðsögn Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og sérfræðingi hjá Mental ráðgjöf. Áhersla vinnustofunnar er meðal annars á samræmdan stjórnendatakt, innleiða regluleg innlit, viðverustjórnun og eftirfylgni. Helena fjallar um hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu til starfa eftir langvarandi fjarveru og hvernig …