18. september, 2026
Fréttir

Sem liður í áframhaldandi þróun leiðtogafærni og markvissari viðverustjórnun hjá Borgarbyggð taka allir stjórnendur sveitarfélagsins þátt í vinnustofu undir leiðsögn Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og sérfræðingi hjá Mental ráðgjöf.

Áhersla vinnustofunnar er meðal annars á samræmdan stjórnendatakt, innleiða regluleg innlit, viðverustjórnun og eftirfylgni. Helena fjallar um hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu til starfa eftir langvarandi fjarveru og hvernig stjórnendur geta tekist á við krefjandi aðstæður. Markmið vinnustofunnar er að skapa sameiginlegan grunn og sameiginlegan nálgun í stjórnun innan sveitarfélagsins.

Með vinnustofunni vill Borgarbyggð styrkja stjórnendur í því að bregðast tímanlega og faglega við áskorunum, efla forvarnir og skapa góðan vettvang fyrir markvissa eftirfylgni og stuðning við starfsfólk.

Borgarbyggð færir Helenu Jónsdóttur bestu þakkir fyrir fræðandi og gagnlega vinnustofur og stjórnendum fyrir virka þátttöku og góðar umræður.

Tengdar fréttir

18. september, 2026
Fréttir

Ungmennaþing Vesturlands haldið í Borgarnesi 25.–27. september

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september 2026. Þingið er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið þingsins er að skapa vettvang þar sem ungt fólk af öllu Vesturlandi getur komið saman, kynnst öðrum ungmennum og tekið þátt í samtali um málefni sem snerta ungt …