10. apríl, 2026
Allar fréttir

Undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina hjá 7. bekk fór fram í sal Grunnskólans í Borgarnesi fimmtudaginn 9. apríl.

Nemendur 7. bekkjar lásu þar texta úr bókinni Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, ásamt því að flytja tvö ljóð að eigin vali.

Það stóðu sig allir frábærlega, en tveir keppendur, ásamt einum varamanni voru valdir áfram til að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í sal Grunnskólans í Borgarnesi þann 21. apríl.

Það eru þau Jón Stormur Indriðason, sem lenti í fyrsta sæti, Hekla Isabel Back, sem lenti í öðru sæti og Louisa Björk Þrastardóttir, sem hlaut þriðja sætið.

Dómarar í ár voru þær Ása Erlingsdóttir og Sigríður Arnardóttir, íslenskukennarar á unglingastigi.

 

Tengdar fréttir