4. september, 2026
Allar fréttir

Í dag tóku nemendur og starfsfólk skólans þátt í Treyjudeginum og mættu í íþróttatreyjum til að sýna samstöðu með börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Treyjudagurinn er táknrænn dagur þar sem við minnumst þess að við erum öll í sama liði. Með því að klæðast treyju sýnum við stuðning, samkennd og samhug með þeim börnum sem þurfa að takast á við erfið veikindi og þeirra nánustu.
Það var fallegt að sjá skólasamfélagið sameinast í þessum mikilvæga málstað. Treyjurnar voru fjölbreyttar og stemningin góð, en boðskapurinn var einn:
Við stöndum saman og erum í sama liði. 💛
