
Mánudaginn 8. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi við hátíðlega og gleðilega athöfn. Dagskráin hófst kl. 10:30 með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks í fylgd lögreglu niður í Skallagrímsgarð. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og nutu samverunnar. Að leikjum loknum var nemendum og starfsfólki boðið upp á pylsur áður en formleg dagskrá hófst. Þar voru flutt nokkur skemmtiatriði og vitnisburðarblöð afhent nemendum.
Síðar um daginn fór fram útskrift 10. bekkjar við hátíðlega athöfn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar voru útskriftarnemendur kvaddir og verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur.
Við óskum útskriftarnemendum okkar innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir samfylgdina. Megi framtíðin færa þeim fjölmörg tækifæri, ánægjulegar stundir og farsæld í þeim verkefnum sem fram undan eru. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hve margir aðstandendur mættu og fögnuðu þessum mikilvæga degi með okkur.
Við þökkum öllum sem komu að deginum fyrir þeirra framlag og óskum nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki gleðilegs sumars.


