13. nóvember, 2026
Allar fréttir

Undanfarið misseri hafa nemendur í 8., 9., og 10. bekk unnið að fjölbreyttu þemaverkefni um náttúruvá.
Í dag var komið að því að sýna afrakstur sköpunar, rannsókna og góðra samvinnu nemenda.
Foreldrar og forráðamenn voru boðin velkomin í Salinn þar sem nemendur voru búin að stilla upp verkefnum sínum og sýndu gestum og gangandi.
Mætingin var frábær og það voru stoltir krakkar sem sýndu fjölbreytt og vel ígrunduð verkefni sem fékk mann jafnvel til að hugsa aðeins um eigin plastnotkun.



