29. maí, 2026
Allar fréttir

Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi fara fram mánudaginn 8. júní að loknum kennsludegi. Nemendur mæta í skólann á hefðbundnum tíma þennan dag. Klukkan 10:30 leggja nemendur í 1.–9. bekk af stað í skrúðgöngu í Skallagrímsgarð þar sem nemendur fara í stutta leiki og grillaðar verða pylsur. Því næst fer fram dagskrá og vitnisburðarblöð verða afhent.
Öllum aðstandendum er hjartanlega velkomið að mæta og fagna þessum tímamótum með nemendum og starfsfólki skólans.
Útskrift 10. bekkjar verður haldin hátíðleg sama dag klukkan 17:00 í Menntaskóla Borgarfjarðar. Foreldrar útskriftarnema bjóða upp á veitingar að dagskrá lokinni.
Við hlökkum til að sjá ykkur og fagna lokum skólaársins saman.