13. apríl, 2026
Allar fréttir

Þórarinn Torfi smíðakennari gaf út lag um dóttur sína 3 apríl s.l. og er það Eva kona hans sem syngur.
Lagið er samið fyrir rúmlega 20 árum og er rólegt og notalegt. En með laginu vantaði mynd til að kynna lagið og þegar Tóti og Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndlistarkennari fóru að spjalla kom upp sú hugmynd að hafa keppni í 10 bekk og sá sem ynni fengi myndina birta með laginu. Krakkarnir lásu textann hlustuðu á lagið og sköpuðu mynd út frá sinni eigin túlkun.
Myndirnar voru lagðar fyrir fjölskyldumeðlimi mína og var þessi mynd hér kosin sem besta myndin.
Sigurvegari keppninnar er Anastacia í 10.b
Hlekkur á lagið:
Sefur þú
Horfi á þig sofandi
með hendur á hnakka
Hjartað slær taktfast hægt
og þú sefur svo vært
Ég þakka fyrir að
ég get ekki farið hvert sem er
Nema hafa þig með,
þú kemur alltaf með
Stúlkan sem ég ann,
rífst við og skammast
Sefur hér og ferðast,
hjólar um drauminn
Og hvernig sem fer er alltaf á hreinu
Hvar ég er
Hjólar brosandi
vinur þinn hann Snorri
situr framan á
Og hann er með hjálm
Nú kemur hún heim
Tími til að borða
Lesa sögu og sofa
Sefur aldrei ein.
Og hvernig sem fer er alltaf á hreinu
Hvar ég er
Og hvernig sem fer er alltaf á hreinu
Hvar ég er ,ég er hjá þér.