
Sú hefð hefur skapast að 3. bekkingar grunnskólans í Borgarnesi hafa tekið að sér verkefnið Jól í skókassa.
Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Skókassarnir eru svo sendir til Úkraínu og dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt(tekið af heimasíðu kfum.is).
Kennarar og foreldrafulltrúar hóuðu foreldrum og börnum saman þann 19. október í sal skólans og hjálpuðust allir til við að útbúa vel útilátna skókassa. Í hvern skókassa var sett skóladót, tannbursti, tannkrem, sápa, sælgæti, fatnaður og lítið leikfang.
Í dag röltu krakkarnir svo yfir í Borgarneskirkju og skiluðu af sér 25 kössum sem verða sendir til Úkraínu á næstu dögum