22. október, 2026
Allar fréttir

Í dag kom Björgunarsveitin Brák færandi hendi og gaf yngsta stigi grunnskólans fallegan fyrstu hjálpar kassa.
“Markmiðið með Barnakassanum er að bjóða upp á skemmtilega og líflega hönnun sem höfðar til barna og sáraumbúðir sem eru lagaðar að líkamsstærð barna svo að þær trufli ekki eðlilegar hreyfingu, séu þægilegar í notkun og stuðli að því að sárin grói fyrr”
Kassinn er skemmtilega myndskreyttur sem og innihald kassans og hjálpar það til við að draga úr hræðslu þegar gera þarf að sárum og kalla jafnvel fram smá bros hjá ungum þolendum
Júlía Guðjónsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu tók við kassanum fyrir hönd grunnskólans og þökkum við Björgunarsveitinni Brák kærlega fyrir gjöfina.