Kosið um bestu barnabókina.
Fyrir páska bauðst nemendum í 2.- 7. bekk að taka þátt í kosningu á bókasafninu. Kosið var um bestu barnabók ársins 2023. Kosningin er hluti af verkefninu Sögur-bókaverðlaun barnanna sem nær til allra barna á landinu.
174 atkvæði voru greidd af 75 nemendum og skiptust á 42 ólíka titla. Það er greinilega mikill fótboltaáhugi í okkar skóla því vinsælustu bækurnar voru :
- Messi er frábær
- Sveindís Jane; saga af stelpu í fótbolta
- Mbappé er frábær
- Strandaglópar; (næstum því) alveg sönn saga
- Lára missir tönn og Skólaslit 2 (jafnar í 5. Sæti).
Einn heppinn nemandi af þeim sem kusu var dreginn út og fékk bókaverðlaun. Verðlaunahafinn í ár var Emil Mager í 5. bekk. Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt.
Atkvæði úr okkar skóla voru svo send á Borgarbókasafnið þar sem atkvæði af öllu landinu voru talin. Sunnudaginn 14. apríl var öllum bókelskandi börnum og foreldrum þeirra boðið á Borgarbókasafnið í Grófinni þar sem úrslitin voru kynnt.
Þetta eru bækurnar sem fengu flest atkvæði á landsvísu í valinu um barnabók ársins 2023:
Lára missir tönn
Orri óstöðvandi – Jólin eru að koma
Salka – Hrekkjavaka
Alexander Daníel Hermann Dawidson – Bannað að drepa
Bella gella krossari
Dagbók Kidda klaufa – Rokkarinn reddar öllu
Messi er frábær
Mbappé er frábær
Góða nótt leðurblaka
Hundmann – Flóadrottinssaga
Næsta skref er rafræn kosning þar sem krökkum á aldrinum 6 – 12 ára býðst að taka þátt í kosningu Sagna – verðlaunahátíð barnanna. Þar geta þau valið lag ársins, texta ársins, barna- og unglingaefni ársins, fjölskylduþátt ársins, talsetta efni ársins, sýningu ársins, leikara/flytjanda ársins, sjónvarpsstjörnu ársins og bók ársins í flokki íslenskra bóka og þýddra bóka.
Hér er hlekkur fyrir áhugasama til að kjósa: https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2024-04-14-kosning-sogur-verdlaunahatid-barnanna-2024-410096
Sögur – verðlaunahátíð barnanna verður svo sýnd í beinni útsendingu á RÚV þann 8. júní klukkan 19:55
Myndir sem fylgja þessari frétt eru frá bókasafninu okkar þar sem nemendur eiga sér smá athvarf til að stíga út úr skarkalanum sem stundum er á göngum skólans.