21. nóvember, 2026
Allar fréttir

Mánudaginn 9. nóvember var haldinn vinadagur milli
grunnskólanemenda og Andabæjar í tilefni af Degi gegn einelti sem var 8. nóvember.
Nemendur 1., 4. og 5. bekkjar heimsóttur Andabæ og léku við börnin þar. 4 og 5 ára börn af Andabæ heimsóttu
grunnskólann. Á báðum stöðum voru unnin alls konar verkefni í sameiningu. Þetta er hefð hjá okkur á Hvanneyri
og er alltaf jafn skemmtilegt.
