
Upptakturinn er verkefni á vegum Hörpu í samstarfi við Listaháskóla Íslands, RÚV, Tónlistarborgina Reykjavík og Barnamenningarhátíð í Reykjavík. Í samstarfi eru einnig Austurland, Borgarbyggð, Garðabær, Kópavogsbær, Menningarfélag Akureyrar, Mosfellsbær. Samtök sunnlenskra sveitafélaga og Vestfjarðastofa.Upptakturinn er tónsköpunarverkefni, ætlað börnum og ungmennum í 5. – 10. Bekk. Þeir Reynir Marteinn og Magnús Snorri, nemendur í 5. bekk á Hvanneyri sendu inn lag og texta eftir sig í keppnina og það er skemmst frá því að segja að þeir komust áfram. Þeir munu núna fá að fara á 4 tónlistasmiðjur sem stýrt er af tónsmíðanemendum í Listaháskóla Íslands. Þar munu þeir fá ýmsa fræðslu og fá að vinna áfram með lagið sitt með aðstoð tónsmíðanemendanna. Að loknu því ferli eru nýju tónsmíðarnar fluttar af starfandi tónlistarfólki á tónleikum í Hörpu. RÚV tekur tónleikana upp og sendir þá út ásamt viðtölum við ungu tónskáldin. Við erum sannarlega stolt af þessum flottu drengjum og hlökkum til að sjá þá í sjónvarpinu.

oplus_1049650