25. mars, 2026
Allar fréttir

Skóli fellur niður fimmtudaginn 26. mars 2026!

Veðurstofan hefur sent út appelsínugula viðvörun vegna veðurs á morgun fimmtudaginn 26. mars. Spáð er suðaustan roki og stórhríð og fólk hefur verið beðið að vera ekki á ferðinni. Við höfum því ákveðið að fella niður skólastarf á morgun á öllum starfsstöðvum skólans.

Á Hvanneyri var búið að plana árshátíð kl. 16:30 Við gerum ráð fyrir að veðrið gangi niður eftir hádegið eins og spár gera ráð fyrir og langar að halda okkur við það. Nemendur á Hvanneyri mæta því í skólann milli 15 og 15:30 og árshátíðin verður kl. 16:30.

Tengdar fréttir