13. júní, 2025
Allar fréttir

Skólaslit Kleppjárnsreykjadeildar fóru fram I Reykholtskirkju þann 3.júní s.l.  Allir nemendur skólans fengu vitnisburð sinn afhentan.

 Helga Jensína skólastjóri þakkaði fyrir eftirminnilegan vetur ekki síst vegna þeirra framkvæmda sem í gangi eru. Þær Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Erla Ýr Péturdóttir fluttu tónlistaratriði og ávörpuðu samkomuna fyrir hönd útskriftarnema. Sú hefð hefur verið að veita viðurkenningu fyrir mestu framfarir í lestri í 5. bekk og í þetta sinn var það Þorbjörg Ásta Guðmundsdóttir.

Þær Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir og Elísabet Halldórsdóttir láta nú af störfum eftir áratuga starf hjá skólanum og var þeim þakkað fyrir vel unnin störf.

Að athöfninni lokinni var boðið uppá veitingar í skólanum.

Tengdar fréttir