9. febrúar, 2026
Allar fréttir

Nemendur í 1.–4. bekk luku nýverið lestrarátaki með glæsibrag. Í lok átaksins voru allir nemendur lestrarprófaðir og sýndu niðurstöður að flestir höfðu bætt sig verulega frá fyrri prófum sem lögð voru fyrir í haust.
Lestraráhugi var mikill á tímabilinu og fyrir hverjar 15 mínútur sem lesnar voru fengu nemendur kerti sem sett var á afmælistertu til heiðurs Línu Langsokks. Tilefnið var sérstakt þar sem Lína Langsokkur fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir.
Átakið heppnaðist einstaklega vel og var bæði lærdómsríkt og skemmtilegt fyrir nemendur, auk þess sem það hvatti til aukins lestraráhuga og ánægju með lestur.