11. mars, 2026
Allar fréttir

Undanfarin ár hefur skapast sú hefð á Hvanneyri að nýta snjóinn í íþróttakennslu þegar hann er til staðar. Snjórinn hefur verið nýttur til að útbúa ýmsa snjóskúlptúra, snjóhús, snjókarla og ýmislegt annað. Í vetur höfum við náð að nýta snjóinn í eldfjallagerð, snjókarlagerð og auðvitað rennt sér á sleða. Þetta vekur alltaf lukku hjá nemendum og finnst þeim gaman að breyta til í íþróttakennslunni. Að vera í snjó og vinna með hann kemur hjartslættinum vel af stað og þarf oft á tíðum mikinn styrk og samvinnu til að byggja snjókarla.

Tengdar fréttir