10. júní, 2025
Allar fréttir

Að venju var mikið um að vera síðasta skóladag vetrarins á Kleppjárnsryekjum. Nemendur mið- og unglingastigs kepptu í sundi, boðið var uppá spil, andlitsmálun og hoppukastala. 10. bekkingar grilluðu hamborgara ofan í allan mannskapinn og var þeim vel tekið.

Eftir matinn fóru allir nemendur í ratleik í liðum sem skipuð voru nemendum af öllum stigum. Að lokum var hinn árvissi fótboltaleikur þar sem 10. bekkingar kepptu við kennara og starfsfólk. Mikil gleði ríkti í mannskapnum þó veðrið hefði vissulega mátt vera betra þennan dag.

Tengdar fréttir