9. október, 2023
Allar fréttir

Nemendur og kennarar unglingastigs Grunnskóla Borgarfjarðar pökkuðu í töskur, settust uppí rútu og lögðu af stað í hópeflisferð miðvikudaginn 30. september 2023. Förinni var heitið í Húsafell þar sem gengin var hin svokallaða Oddaleið, 5km löng leið sem tók u.þ.b. 2klst að ganga. Skiljanlega voru allir orðnir svangir þegar komið var aftur á tjaldsvæðið og því kom sér vel að Ása var búin að hita upp grillið og tilbúin að grilla pylsurnar. Í kjölfarið var hópnum skipt í 9 hópa og farið í ratleik. Krakkarnir unnu vel saman við að leysa úr ýmiskonar þrautum og voru hér um bil allir hópar alveg búnir með öll sín verkefni þegar Binni í Hlöðutúni kom aftur á rútunni og sótti hópinn. Næsta stopp var Brautartunga þar sem hópurinn var yfir nótt. Sundlaugin, fótboltamarkið, grillið og háaloftið var allt saman nýtt vel og ekki hægt að segja annað en að allir hafi verið til fyrirmyndar.

Hópurinn var kominn aftur á Kleppjárnsreyki í hádegismat á fimmtudeginum eftir vel heppnaða ferð.

Tengdar fréttir