14. júní, 2026
Allar fréttir

Nemendur í 1.–4. bekk  á Varmalandi tóku þátt í skemmtilegum og fræðandi hjóladegi í skólanum á dögunum. Dagurinn var helgaður hjólreiðum, öryggi og góðri umferðarmenningu.

Krakkarnir settu sjálfir upp þrautabraut á skólalóðinni þar sem þeir gátu æft jafnvægi, stjórnun og færni á hjólinu sínu. Mikill áhugi og gleði einkenndu daginn og nemendur stóðu sig einstaklega vel við að takast á við hinar ýmsu áskoranir brautarinnar. 

Sérstakur gestur dagsins var lögreglan sem kom í heimsókn og ræddi við nemendur um mikilvægi öryggisbúnaðar við hjólreiðar. Farið var yfir hvers vegna mikilvægt er að nota hjálm, hafa hjólið í góðu ástandi og vera sýnilegur í umferðinni.  

Að fræðslunni lokinni fengu allir nemendur límmiða frá lögreglunni á hjólin sín sem viðurkenningu fyrir þátttökuna og til að minna á mikilvægi öruggra hjólreiða. 

Dagurinn tókst afar vel og voru bæði nemendur og starfsfólk ánægð með samveruna, hreyfinguna og þann lærdóm sem fylgdi. Við þökkum lögreglunni kærlega fyrir komuna og hlökkum til næsta hjóladags. 

Tengdar fréttir