
Þann 5. júní síðastliðinn útskrifuðum við elsta hópinn okkar, börn fædd 2019.
Börnin bjuggu til stuttmynd sem gestir fengu að sjá, sem unnin var upp úr bókinni A Squash and a Squeeze eftir Juliu Donaldson. Myndin fjallaði um gamla konu sem býr ein í litlu húsi upp í sveit. Dag einn segir hún við sjálfan sig að húsið sé allt of lítið og allt sé í kremju og klessu. Gamall maður sem gengur hjá heyrir í henni og spyr hvað sé að. Hún segir það og hann gefur henni ráð, hún undrast hugmyndir hans en gerir samt eins og hann segir.
Gestir fengu að sjá þessa mynd og viðtöl við börnum um hvað þau væru búin að læra í leikskólanum.
Gestir fengu svo veitingar sem börnin voru búin velja og allir skemmtu sér vel.
Dásamleg stund og yndislegur hópur sem kveður okkur brátt. Í haust hefst þau svo nýjan og spennandi kafli í sínu lífi, að byrja í grunnskóla.