
Við héldum áfram að vinna að sameiginlegu STEAM þróunarverkefni okkar og leikskólans Klettaborgar og í október voru heimsóknir skólahópanna á dagskrá. Fyrst kom skólahópur Klettaborgar í heimsókn á Hvanneyri og fóru ásamt skólahópnum okkar í heimsókn í Landbúnaðarsafnið. Seinna í mánuðinum fór skólahópurinn okkar í heimsókn í Borgarnes og hittu skólahóp Klettaborgar, þar sem við fengum að heimsækja bókasafnið og Landnámssetrið.
Tókum þátt í bleika deginum 21. október. Þá voru börn og starfsfólk hvött til að klæðast einhverju bleiku auk þess sem börnin nýttu bleika litinn í listsköpun og fleiri verkefni. Með þessu vildum við sýna fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning.
Elstu tveir árgangarnir fóru í leikhúsferð í Borgarnes og sáu þar sýningu á vegum Óperudaga og voru mjög ánægð með ferðina.
Þar sem Alþjóðlegi bangsadagurinn lenti á skráningardegi hjá okkur og mörg börn í fríi þann dag var ákveðið að halda náttfata- og bangsadag í vikunni á undan. Þá mættu börn og starfsfólk í náttfötum og með bangsa ef þau vildu og áttu notalegan dag saman í leikskólanum. Hrekkjavakan var á laugardegi þetta árið svo við notuðum vikurnar fyrir til þess að skreyta leikskólann og héldum svo hrekkjavökuball á mánudeginum á eftir, þar sem við fengum meðal annars norn í heimsókn.
Börnin er farin á fullt í jólagjafagerð og verður spennandi að sjá hvað kemur upp úr jólapökkum til foreldra þetta árið.
