16. júní, 2025
Allar fréttir

Miðvikudaginn 11. júní tók Andabær á móti Grænfánanum í níunda sinn og eru 20 ár síðan við fengum fánann fyrst. Við þessi tímamót afhenti Sigurlaug frá Landvernd okkur fánann. Skemmtileg stund og erum við mjög stolt af Grænfánastarfinu okkar sl. 20 ár.
Eftir það hélt Foreldrafélag Andbæjar sumarhátíð þar sem boðið var upp á hoppukastala, fulltrúar frá slökkviliðinu komu í heimsókn og fengu þeir sem vildu að sprauta úr brunaslöngunni. Grillaðar voru pylsur og allir fengu köku. Þetta var vel heppnuð stund og skemmtu börn og fullorðnir sér vel.