Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarfjarðar til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri.
Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið að taka þátt og kynna starfsemi sína sér að kostnaðarlausu.
Langar þig að taka þátt og kynna þína starfsemi?
Endilega hafðu samband til að sækja um pláss sonjalind@borgarbyggd.is eða bjarney@umsb.is
Umsóknir þurfa að berast fyrir 21. september.

Tengdar fréttir

5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, miðvikudaginn, 7. október nk. og hefst kl. 16:30. Hér má sjá dagskrá fundarins: 5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

Borgarbyggð tekur þátt í sameiginlegu átaki gegn verðbólgu
Starfsgreinasamband Íslands hefur kallað eftir því að ríki, sveitarfélög, verslun og þjónustuaðilar taki höndum saman um verðstöðugleika og skuldbindi sig til að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan 2,5%. Borgarbyggð tekur undir þau markmið og hefur byggðarráð samþykkt að stefnt verði að því að halda almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins innan þess ramma árið 2027, að því gefnu að ríkisvaldið og …