Borgarbyggð og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hafa skrifað undir samstarfssamning sem felur í sér að þeir íbúar sveitarfélagsins sem eru í krabbameinsmeðferð eða endurhæfingu fái frítt árskort í sundlaugar og íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar.
Markmið samstarfsins er að styðja við og efla heilsu, vellíðan og lífsgæði fólks sem glímir við krabbamein og stuðla að auknum möguleikum til hreyfingar og endurhæfingar.
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar heldur utan um kortin og sér um úthlutun þeirra til félagsmanna sem eiga lögheimili í Borgarbyggð. Kortin gilda í tólf mánuði í senn og hægt er að framlengja þau um annað ár ef meðferð eða endurhæfing stendur enn yfir.
Samningurinn þessi er til þriggja ára og styðjum við stolt við þær hetjur sem eiga erfitt verkefni fyrir höndum.
Við minnum svo á facebook- síðuna Krabbameinsfélag Borgarfjarðar
Tengdar fréttir

Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24–30 að hefjast
Borgarbyggð vekur athygli á því að framkvæmdir eru að hefjast við fjölbýlishús að Kveldúlfsgötu 24–30 og aðliggjandi leiksvæði. Upphaf framkvæmda hefur tafist vegna ábendinga sem bárust við upphaf verksins sem teknar voru til skoðunar. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og frágang á svæðinu. Áætlað er að verkið taki um þrjár vikur, en …