18. nóvember, 2026
Fréttir

Borgarbyggð vekur athygli á því að framkvæmdir eru að hefjast við fjölbýlishús að Kveldúlfsgötu 24–30 og aðliggjandi leiksvæði.

Upphaf framkvæmda hefur tafist vegna ábendinga sem bárust við upphaf verksins sem teknar voru til skoðunar.

Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og frágang á svæðinu.

Áætlað er að verkið taki um þrjár vikur, en veðurfar getur haft áhrif á verklok.

Á framkvæmdatímanum má búast við tímabundnum truflunum á umferð og aðgengi. Vegfarendur eru því beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu.

Borgarbyggð þakkar íbúum fyrir sýnda þolinmæði og skilning.

Tengdar fréttir

18. nóvember, 2026
Fréttir

Borgarbyggð og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar gera samstarfssamning

Borgarbyggð og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hafa skrifað undir samstarfssamning sem felur í sér að þeir íbúar sveitarfélagsins sem eru í krabbameinsmeðferð eða endurhæfingu fái frítt árskort í sundlaugar og íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar. Markmið samstarfsins er að styðja við og efla heilsu, vellíðan og lífsgæði fólks sem glímir við krabbamein og stuðla að auknum möguleikum til hreyfingar og endurhæfingar. Krabbameinsfélag Borgarfjarðar heldur utan …