
Nú er tilvalið að fara út að leika.
Krakkar í Grunnskólanum í Borgarnesi hafa í samstarfi við Önnu Siggu, myndmenntakennara skólans búið til listaverk sem sett hafa verið upp á valda ljósastaura í bænum. Á listaverkum krakkana má finna QR kóða sem hægt er að smella á með símtækjunum sínum og finna stafi. Stafirnir mynda orð og talnarunu.
Þessi stórskemmilegur leikur er tilvalinn samverustund fyrir alla fjölskyldan, þ.e. finna þessa staura og stafina sem þeir hafa að geyma. Það er ekki eftir neinu að bíða en að hefja leika.
Spýturnar eru 46 talsins en sumar spýtur hafa enga stafi né tölustafi. Þegar leikmenn hafa fundið alla stafina á spýtunum þarf að mynda orð og talnarunu. Þegar hópurinn telur sig hafa fundið lausnarorðið má senda það inn ásamt upplýsingum um nafn og tölvupóst á netfangið listaskoli.borgarbyggd@gmail.com
Dregið verður úr innsendum lausnum á lokahátíðinni.
Bestu þakkir fá Grunnskólinn í Borgarnesi.
Staurarnir eru á Borgarbrautinni, frá gatnamótum Kveldúlfsgötu, Skallagrímsgötu og Þorsteinsgötu!
Tengdar fréttir

Framkvæmdir við fjölnotahús í Borgarnesi
Vinna við niðurrekstur rekstaura vegna byggingar nýs fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi hefst í næstu viku. Um er að ræða niðurrekstur rekstaura fyrir burðarvirki fjölnotahúss, áætlað að þessi áfangi framkvæmda standi yfir út maímánuð. Á þessu tímabili má búast við auknum umferðaþunga flutningabíla og hávaða við næsta nágrenni íþróttasvæðis. Við leggjum mikla áherslu á að tryggja öryggi íbúa og vegfarenda meðan …

Bjarkarhlíð býður upp á þjónustu fyrir íbúa á Vesturlandi
Bjarkarhlíð veitir nú þjónustu fyrir íbúa á Vesturlandi. Ráðgjafi frá Bjarkarhlíð verður til staðar í Borgarnesi, Stykkishólmi og á Akranesi, einn dag í mánuði. Dagssetningar í Borgarbyggð, vorönn 2025: 21. maí | 23. júní | 28. júlí | 25. ágúst | 22. september | 20. október | 17. nóvember | 15. desember Um Bjarkarhlíð: Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. …