8. maí, 2025
Fréttir

Vinna við niðurrekstur rekstaura vegna byggingar nýs fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi hefst í næstu viku.

Um er að ræða niðurrekstur rekstaura fyrir burðarvirki fjölnotahúss, áætlað að þessi áfangi framkvæmda standi yfir út maímánuð. Á þessu tímabili má búast við auknum umferðaþunga flutningabíla og hávaða við næsta nágrenni íþróttasvæðis.

Við leggjum mikla áherslu á að tryggja öryggi íbúa og vegfarenda meðan á framkvæmdum stendur. Vinsamlegast virðið lokanir, merkingar og leiðbeiningar á svæðinu. Foreldrar eru hvattir til að ræða við börn sín um að halda sig frá framkvæmdasvæðinu.

Við þökkum sýnda þolinmæði og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og munum kappkosta að halda raski í lágmarki.

Frekari upplýsingar um framkvæmdina gefur Orri Jónsson hjá Eflu. Ábendingar eða athugasemdir skal senda á netfangið orri.jons@efla.is

Tengdar fréttir

10. febrúar, 2026
Fréttir

274. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

274. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar verður haldinn í Hjálmakletti, fimmtudaginn, 12. febrúar nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: —————— 274. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

9. febrúar, 2026
Fréttir

Lagnaframkvæmdir við Sólbakka

Vegna lagnavinnu við Sólbakka verður tímabundin þrenging á veginum við hús nr. 30 og 31. Framkvæmdir hefjast 9. febrúar og er áætlað að þeim ljúki um 13. febrúar. Íbúar og vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að fylgja settum reglum og virða afmarkað vinnusvæði á meðan á framkvæmdum stendur. Framkvæmdaraðilar og Borgarbyggð þakka íbúum og gestum fyrir skilning á þeim óþægindum sem framkvæmdunum kann …