26. júní, 2026
Tilkynningar

Vegna tæknilegra vandræða hefur gengið illa að senda reikninga frá Borgarbyggð inn á island.is, á næstu dögum munu því nýir og eldri reikningar berast inn á pósthólf greiðenda.

Þó reikningur sé að berast núna þarf ekki að vera að hann sé ógreiddur. Rétt bókunardagsetning reiknings kemur fram á reikningnum sjálfum.

Á næstu dögum ættu því greiðendur að fá tilkynningar um nýtt skjal á island.is.
Líklegt er að eldri reikningar séu nú þegar greiddir en ógreiddar bankakröfur er hægt að skoða í heimabanka eða bankaappi.

Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Borgarbyggðar á borgarbyggd@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.

Upplýsingar um reikninga má finna hér: https://borgarbyggd.is/sidur/stjornsysla/fjarmal/reikningar

Tengdar fréttir

21. ágúst, 2026
Fréttir

Nýjar vatnsrennibrautir vígðar í Borgarnesi

Nýjar vatnsrennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru vígðar í gær við mikinn fögnuð sundlaugargesta. Fulltrúar í sveitarstjórn stýrðu vígsluathöfninni ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra. Framkvæmdir á endurnýjun rennibrautanna hófust í júní síðastliðnum, en þær gömlu höfðu þá þjónað landanum og gestum í nær 30 ár.Framkvæmdirnar drógust nokkuð á langinn og því hafði eftirvæntingin verið mikil. Það mátti svo sannarlega sjá …

17. ágúst, 2026
Fréttir

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB  Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:  Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi  Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl.  Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.     Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu  Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.  Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.  …