17. ágúst, 2026
Fréttir

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB 

Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: 

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi 

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. 

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. 

 

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu 

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. 

 

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi 

Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst, Þverárhlíð. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. 

 

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum 

Þar kjósa íbúar Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Í ár verður kjörfundur í Kleppjárnsreykjakjördeild í nýja hluta grunnskólans. Best er þá að leggja í bílastæðin við Borgarfjarðarbraut en keyra ekki inn í portið. Hurðin sem gengið er um verður merkt. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00 

 

Skorradalskjördeild í Laugarbúð Skorradal 

Þar kjósa íbúar Skorradals. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. 


Kjörskrá 

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi í afgreiðslu ráðhúss Borgarbyggðar Digranesgötu 2, alla virka daga á opnunartíma. 

Talning
Talning atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar Borgarbraut 54. 

Opið er fyrir uppflettingar í kjörskrá, sjá hér.  

 

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.
 

Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar 

Tengdar fréttir

14. ágúst, 2026
Fréttir

Framkvæmdir á Hringveginum í gegnum Borgarnes

Kvöldin 16. ágúst, 17. ágúst og 18. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en  merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 umrædd kvöld.  Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan Vegfarendur …