9. september, 2026
Fréttir
Í september eru liðin 90 ár frá því franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við Mýrar árið 1936. Strandið markaði djúp spor í samfélagið á Mýrum.
Af því tilefni verður efnt til minningardagskrár miðvikudaginn 16. september. Þar verður sagan rifjuð upp og minning skipsins, áhafnar þess og Íslandsvinarins Jean-Baptiste Charcot höfð í heiðri. Um leið og sjónum verður beint að tengslum heimafólks við þessa örlagaríku atburði og vináttunni milli Íslands og Frakklands.
Dagskráin fléttar saman frásögnum, kvikmyndum, ljósmyndum, munum og tónlist. Gestum gefst tækifæri til að kynnast sögunni frá ólíkum sjónarhornum og koma saman og taka þátt í að halda minningunni lifandi.

Dagskrá dagsins:

12:00 – Opnun örsýningar í Safnahúsi Borgarfjarðar
16:30 – Minni Mýramanna: Pourquoi Pas? og samfélagið í Félagsheimilinu Lyngbrekku
Sýnt verður viðtal Ómars Ragnarssonar við Ingibjörgu Friðgeirsdóttur frá Hofsstöðum um atburðina, auk kvikmynda af flaki skipsins við Hnokkan. Einnig verða ávörp og frásagnir, sýning á munum í einkaeigu heimafólks og tónlistaratriði með Þóru Sif Svansdóttur. Veitingasala verðður á vegum Kvenfélags Álftaneshrepps.
20:00 – Illugi Jökulsson á Söguloftinu – 90 ár frá strandi Pourquoi Pas?
Illugi Jökulsson segir hina dramatísku sögu strandsins með ríkulegum myndskreytingum á Sögulofti Landnámsseturs Íslands. Aðgangur að viðburðinum er ókeypis.
Nánar hér

Dagskráin er unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Franska sendiráðsins á Íslandi, landeigenda í Straumfirði, SSV og Landnámsseturs Íslands.
Þau sem eiga muni eða ljósmyndir tengdar Charcot, Pourquoi Pas?, áhöfninni eða strandinu og vilja lána á örsýninguna eru hvött til að hafa samband við Sigurstein Sigurðsson verkefnastjóra í síma 698-8503 eða á sigursteinn@ssv.is.
Öll eru hjartanlega velkomin.

Tengdar fréttir

6. október, 2026
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu. Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu …

6. október, 2026
Fréttir

Leikskólinn Ugluklettur tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Leikskólinn Ugluklettur hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir þróunarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf. Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur nú tilkynnt um tilnefningar til verðlaunanna í ár. Tilnefning Ugluklettar er í flokki þróunarverkefna og er hún mikil viðurkenning fyrir það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið að innan leikskólans. Þetta er í sjöunda sinn sem Íslensku menntaverðlaunin eru veitt eftir …