Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar.
Ásgerður er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku og er að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði frá landbúnaðarháskóla Íslands. Ásgerður er með góða reynslu af störfum tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur tekið þátt í og átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengt skipulagsmálum. Hún hefur t.a.m komið að endurskoðun aðalskipulags, nýjum deiliskipulögum og breytingum á deiliskipulögum, útgáfu framkvæmdarleyfa og sinnt grenndarkynningum byggingarleyfa.
Ásgerður mun taka til starfa sem skipulagsfulltrúi 1. október nk. og tekur við embættinu af Drífu Gústafsdóttur sem gegnt hefur starfinu frá janúar 2021 og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.
Tengdar fréttir

Pourquoi Pas? 90 ára ártíð
Í september eru liðin 90 ár frá því franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við Mýrar árið 1936. Strandið markaði djúp spor í samfélagið á Mýrum. Af því tilefni verður efnt til minningardagskrár miðvikudaginn 16. september. Þar verður sagan rifjuð upp og minning skipsins, áhafnar þess og Íslandsvinarins Jean-Baptiste Charcot höfð í heiðri. Um leið og sjónum verður beint að tengslum …