16. júní, 2025
Fréttir

Mikil tímamót urðí sögu Grunnskólans í Borgarnesi nú í vor við lok skólaárs þegar þrír kennarar létu af störfum vegna aldurs, eftir langan og farsælan starfsferil.

Kristín Valgarðsdóttir deildarstjóri unglingastigs, Ragnhildur Kristín Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri og Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir sérkennari luku glæsilegum ferli í kennslu eftir mörg áí skólaumhverfinu.

Kristín Valgarðsdóttir hefur starfað við Grunnskólann í Borgarnesi í 18 ár, Ragnhildur Kristín Einarsdóttir í 26 ár og Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir í 29 ár. Samanalagt hafa þær varið um 73 árum í Grunnskólanum í Borgarnesi.

Borgarbyggð vill þakka þessum frábæru kennurum fyrir þeirra framlag til skólastarfsins í gegnum árin og og óskar þeim valfarnaðar í hverju sem þær munu taka sér fyrir hendur.

Ámundi Sigurðsson lætur einnig af störfum en hann hefur starfað sem verkstjóri áhaldahússins síðan árið 2014. Við þökkum Ámunda innilega fyrir vel unnin störf en íbúar hafa eflaust séð Ámunda og hans starfsfólk fegra og betrumbæta umhverfið í sveitafélaginu.
Borgarbyggð óskar Ámunda góðs gengis í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.

 

Tengdar fréttir

18. júní, 2025
Fréttir

Aníta Björk Ontiveros er fjallkona Borgarnes 2025

Löng hefð er fyrir því í Borgarnesi að Kvenfélag Borgarness sjái um val á Fjallkonu úr hópi nýstúdenta ár hvert. Í ár 2025 var Aníta Björk Ontiveros fyrir valinu. Aníta Björk steig á svið og flutti ljóðið flutti ljóðið „Vorvísur“ eftir Sigríði Helgadóttur, frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Auk þess að flytja ljóð í Skallagrímsgarði heimsótti Aníta Brákarhlíð, þar sem hún …

18. júní, 2025
Fréttir

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er Listamanneskja Borgarbyggðar 2025

Árlega er viðurkenning veitt fyrir listamanneskju Borgarbyggðar á 17. júní. Listamanneskjan sem sveitarstjórn tilnefndi að þessu sinni er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðlistakona er fædd þann 15. apríl árið 1994 og steig sín fyrstu skref í inn á listabrautina 4ra ára gömul þegar hún hóf nám í Tónlistarkóla Borgarfjarðar þar sem hún lærði á píanó, fiðlu og söng. Eftir …