18. júní, 2025
Fréttir
Árlega er viðurkenning veitt fyrir listamanneskju Borgarbyggðar á 17. júní.
Listamanneskjan sem sveitarstjórn tilnefndi að þessu sinni er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðlistakona er fædd þann 15. apríl árið 1994 og steig sín fyrstu skref í inn á listabrautina 4ra ára gömul þegar hún hóf nám í Tónlistarkóla Borgarfjarðar þar sem hún lærði á píanó, fiðlu og söng. Eftir það tók við framhaldsnám við Söngskólann í Reykjavíkur, en þaðan lauk hún 8. stigi í söng og 7. stigi á píanó. Þá lá leiðin til Vínarborgar í tónlistarháskóla og eftir það í Copenhagen Internation School of Performing Art, þaðan sem hún lauk BA- prófi árið 2020 en samhliða því námi lagði hún áfram stund á einkanám í söng.

Sigríður hefur verið sjálfstætt starfandi í sviðlistum óslitið frá 2020 og fjölda verkefni sem hún hefur komið að með einum eða öðrum hætti. Síðastliðið leikhár hefur hún meðal annars nefna Konukroppar, en frumsýnt var í Sundlauginni í Brautartungu, þar var Sigríður danshöfundur og flytjandi í verkefninu. Hún lék í verkinu Með vindinum liggur leiðin heim í
uppsetningu Handbendis, leikstýrði óperunum Gleðilegi geðrofsleikurinn og Varstu búinn að vera að reyna að ná í mig? eftir Guðmund Stein Gunnarsson, lék í söngleiknum Við erum hér í leikstjórn Agnesar Wild í Tjarnarbíói, stóð fyrir tónleikunum Melankólía milli jóla og nýárs ásamt systur sinni, Hönnu Ágústu, í Borgarkirkju á Mýrum, tók við hlutverki Karíusar í sýningunni Karíus og Baktus í Hörpu, lék aðalhlutverk í stuttmyndinni Óáran eftir Álfheiði Richter, söng tónleika á tónlistarhátíðinni Bjartir mússíkdagar í Borgarnesi ásamt Pétri Erni Svavarssyni að ógleymdu því að vera framleiðandi, höfundur og leika titilhlutverkið í sýningunni DIETRICH í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.

Fyrir störf sín á þessu á leikárinu 2024-2025 var Sigríður tilnefnd til Hvatningarverðlauna Grímunnar 2025.
Auk þessa kennir Sigríður við Söngskólann í Reykjavík og situr í stjórn bæði í Sviðlistasambandi Íslands og Sjálfstæðu Leikhópana.

Við óskum Sigríði Ástu Olgeirsdóttir innilega til hamingju með titilinn listamanneskja Borgarbyggðar 2025.


Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Guðveig Lind Eyglóardóttir, Forseti sveitarstjórnar

Tengdar fréttir

17. júlí, 2026
Fréttir

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026

Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar. Síðasti …

15. júlí, 2026
Fréttir

Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi

Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi Kæru íbúar, Nú á næstu vikum hefjast framkvæmdir við endurnýjun Bröttugötu í Borgarnesi. Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik standa fyrir framkvæmdinni þar sem endurnýja á lagnir í götunni — fráveitu-, kaldavatns- og hitaveitulagnir ásamt raflögnum — og Borgarbyggð endurnýjar yfirborð götunnar og gangstéttir. Verktaki verksins er Borgarverk ehf. Heimlagnir að einstaka húsum verða …