24. ágúst, 2026
Fréttir

Nú styttist í að grunnskólarnir í Borgarbyggð taki aftur til starfa og spennandi skólaár fram undan hjá starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra.

Í Grunnskóla Borgarfjarðar fer skólasetning fram á morgun, 25. ágúst
Hvanneyri: kl. 9:30
Kleppjárnsreykir: kl. 11:00
Varmaland: kl. 13:00

Alls hefja 15 nemendur nám í 1. bekk við skólann í haust.
Skóladagatal og aðrar upplýsingar má finna á vef skólans hér

Skólasetning hjá Grunnskólanum í Borgarnesi fer einnig fram á morgun og í sal skólans
1.–4. bekkur: kl. 10:00
5.–10. bekkur: kl. 10:40

Við Grunnskólann í Borgarnesi verða 332 nemendur á þessu skólaári og þar af hefja 29 nemendur nám í 1. bekk.
Skóladagatal og aðrar upplýsingar má finna á vef skólans hér

Á vef frístundar má einnig finna allar helstu upplýsingar varðandi starfið- umsóknir, frístundastyrki og gjaldskrá.

Við óskum öllum nemendum, foreldrum og starfsfólki góðs gengis á komandi skólaári.

Tengdar fréttir

24. ágúst, 2026
Fréttir

Framkvæmdir hefjast í Bröttugötu

Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK, hófu í dag framkvæmdir í Bröttugötu. Þar sem lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu verða endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði götu og gangstétta. Unnið verður á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 30. október nk. Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst er að …