
Fimmtudaginn 6. mars var Söngkeppni Samvest haldin í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Keppnin er undankeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fyrir Söngkeppni Samfés. Þær Erla Ýr Pétursdóttir og Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir sigruðu Söngkeppni Óðals og kepptu því fyrir hönd Óðals en tæplega 40 unglingar frá Óðali fóru með til Ólafsvíkur til að hvetja þær áfram.
Kristbjörg Ragney sigraði keppnina og verður því annar tveggja fulltrúa Vesturlands í Söngkeppni Samfés þann 3. maí næstkomandi. Við óskum Kristbjörgu innilega til hamingju með sigurinn og þökkum báðum keppendum fyrir glæsilegt framlag til keppninnar fyrir hönd Óðals.
Tengdar fréttir

Aníta Björk Ontiveros er fjallkona Borgarnes 2025
Löng hefð er fyrir því í Borgarnesi að Kvenfélag Borgarness sjái um val á Fjallkonu úr hópi nýstúdenta ár hvert. Í ár 2025 var Aníta Björk Ontiveros fyrir valinu. Aníta Björk steig á svið og flutti ljóðið flutti ljóðið „Vorvísur“ eftir Sigríði Helgadóttur, frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Auk þess að flytja ljóð í Skallagrímsgarði heimsótti Aníta Brákarhlíð, þar sem hún …

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er Listamanneskja Borgarbyggðar 2025
Árlega er viðurkenning veitt fyrir listamanneskju Borgarbyggðar á 17. júní. Listamanneskjan sem sveitarstjórn tilnefndi að þessu sinni er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðlistakona er fædd þann 15. apríl árið 1994 og steig sín fyrstu skref í inn á listabrautina 4ra ára gömul þegar hún hóf nám í Tónlistarkóla Borgarfjarðar þar sem hún lærði á píanó, fiðlu og söng. Eftir …