
Borgarbyggð auglýsir til umsóknar framkvæmdastyrki. Styrkjunum er ætlað að styðja við einstakar framkvæmdir hjá íþrótta- og tómstundafélögum innan Borgarbyggðar til uppbyggingar eða viðhalds á fasteignum eða athafnasvæði félagsins sem Borgarbyggð kemur ekki að rekstri að öðru leyti og er í eigu félaga eða félagasamtaka innan Borgarbyggðar.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um íþrótta-, ungmenna- eða tómstundafélag innan Borgarbyggðar sé að ræða. Umsóknaraðili þarf að reka sértæka aðstöðu eða húsnæði innan sveitarfélagsins sem sveitarfélagið Borgarbyggð hvorki á eða rekur og leggur ekki til framkvæmdarfé á fjárhagsáætlun.
Umsókninni þarf að fylgja framkvæmdar- og kostnaðaráætlun. Einnig þarf að koma skýrt fram hvert er markmið framkvæmdarinnar.
Hægt er að sækja um styrki til verkefna sem eru nú þegar í gangi eða eru áformuð. Ekki er úthlutað vegna verkefna þar sem framkvæmdum er lokið.
Hámarksstyrkur er kr. 2.000.000 og getur hvert verkefni að hámarki verið stutt 3 ár í senn. Sjálboðavinna er metin að fullu sem vinna.
Styrkurinn greiðist í tvennu lagi, 50% við tilkynningu um styrkveitingu og 50% þegar lokaskýrsla hefur borist byggðarráði. Verði verkið ekki framkvæmt skal styrkurinn endurgreiðast að fullu. Vinnist verkið ekki eins og fram kom í upphaflegri styrkbeiðni verður að koma skýrt fram í lokaskýrslu hvers vegna svo er ekki og rökstuðningur að fylgja.
Við úthlutun á styrk skal eftirfarandi reglum fylgt til að fá úr því skorið hvort framkvæmdin teljist styrkhæf.
- Að um sé að ræða skilgreint íþrótta og/eða tómstundafélag sem standi fyrir framkvæmdinni.
- Að félagið eigi lögheimili í Borgarbyggð og sé opið öllum.
- Að framkvæmdin bæti aðstöðu og/eða auki möguleika á að fjölga iðkendum í viðkomandi félagi.
- Að félagið hafi fjárhagslega eða félagslegan styrk til að standa að framkvæmdum og rekstri þess sem á að framkvæma enda komi það fram í áætlun sem fylgi með umsókn.
- Að starfsemin falli vel að markmiðum sveitarfélagsins um íþróttir og tómstundir sem birtast í stefnum þess.
Sótt er um á íbúagátt á heimasíðu Borgarbyggðar, umsóknarfrestur er til og með 30.júní 2025.
Nánari upplýsingar veitir Sonja Lind E. Eyglóardóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 433-7100 eða á netfangið sonjalind@borgarbyggd.is.
Tengdar fréttir

Aníta Björk Ontiveros er fjallkona Borgarnes 2025
Löng hefð er fyrir því í Borgarnesi að Kvenfélag Borgarness sjái um val á Fjallkonu úr hópi nýstúdenta ár hvert. Í ár 2025 var Aníta Björk Ontiveros fyrir valinu. Aníta Björk steig á svið og flutti ljóðið flutti ljóðið „Vorvísur“ eftir Sigríði Helgadóttur, frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Auk þess að flytja ljóð í Skallagrímsgarði heimsótti Aníta Brákarhlíð, þar sem hún …

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er Listamanneskja Borgarbyggðar 2025
Árlega er viðurkenning veitt fyrir listamanneskju Borgarbyggðar á 17. júní. Listamanneskjan sem sveitarstjórn tilnefndi að þessu sinni er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðlistakona er fædd þann 15. apríl árið 1994 og steig sín fyrstu skref í inn á listabrautina 4ra ára gömul þegar hún hóf nám í Tónlistarkóla Borgarfjarðar þar sem hún lærði á píanó, fiðlu og söng. Eftir …