6. maí, 2026
Allar fréttir

Þann 5. maí síðastliðinn útskrifaðist glæsilegur hópur leikskólabarna, árgangur 2020, sem í haust taka sín fyrstu skref inn í nýjan og spennandi kafla.
Af því tilefni var haldin hátíðleg útskriftarhátíð þar sem börnin stigu á svið af öryggi og gleði. Börnin tóku lagið fyrir viðstadda, sýndu skemmtilegt myndband þar sem þau voru spurð út í hvað þau vildu vera þegar þau yrðu stór, sögðu skemmtilega brandara sem vöktu mikla kátínu. Að athöfn lokinni var svo boðið upp á kakó og regnbogaköku að ósk barnanna.
Við óskum árgangi 2020 innilega til hamingju, framtíðin er ykkar.