4. september, 2023
Allar fréttir

Skólaárið 2023 – 2024 er komið á fullt og allir spenntir fyrir komandi vetri.  Fjölbreytt og spennandi viðfangsefni bíða okkur í vetur, meðal annars tekur Ugluklettur þátt í þróunarverkefni sem hefur fengið nafnið Stilla – Hæglátt leikskólastarf.

Meginmarkmið verkefnisins er að þróa hæglátt leikskólastarf og dýpka þannig þekkingu og skilning á upplifun barna á tíma í leikskólum. Stuðst verður við aðferðir starfendarannsókna og uppeldisfræðilegar skráningar til að skrá ferlið. Tilgangur þess er að auka þekkingu starfsfólks, foreldra og barna á námi barna og þeim tíma sem börn þurfa til að kanna heiminn og prófa hugmyndir sínar í daglegu starfi í leikskóla. Hæglátt leikskólastarf felur í sér að kennarar gefi sér tíma og næði til að skoða rými og efnivið sem börn hafa til að kanna í leik sem og þau hugtök og aðferðir sem notaðar eru til að styðja við nám barna. Í slíku leikskólastarfi gefast tækifæri til að dýpka og þróa nám barna með því að „dvelja með“ og ígrunda með uppeldisfræðilegum skráningum. Tekið er mið af fjölbreyttum tungumálum barna og tími gefinn til að hlusta á hugmyndir þeirra og reynslu. Einnig er sett í forgang að ræða við og hlusta á samstarfsfólk og fjölskyldur. Gagnrýnin hugsun er mikilvæg og langtímasjónarmið í forgangi varðandi börn og nám þeirra. Lögð er áhersla á „hér og nú“ og gætt að deginum í dag og litið til reynslu barna og þá þekkingu sem þau hafa öðlast en einnig hugað að framtíðinni. Svigrúm er gefið í að hlusta og vinna saman í leik. Tekið er tillit til hópsins jafnt sem einstaklinga yfir lengri tíma. Ferlið er í fyrirrúmi og farið er á dýptina í námi.

Ugluklettur er einn af fjórum leikskólum sem tekur þátt í verkefninu á Íslandi, hinir eru þeir Aðalþing, Iðavöllur og Rauðhóll og þrír háskólar, Háskóli Íslands sem leiðir verkefnið, Háskólinn á Akureyri og svo eru samrannsakendur frá háskólanum Sørøst-Norge. Hlökkum við mikið til þess verkefnis og er það okkur heiður að vera þátttakendur í  leiðandi í þróun hægláts leikskólastarfs á Íslandi.

Tengdar fréttir