
Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsu dagana 12. – 14. september á Reykjum í
Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Félagslegir töfrar. Töfrarnir vísa til mikilvægra en ósýnilegra gilda sem myndast í samskiptum og samveru fólks. Þeir móta hugmyndir,
hegðun og sjálfsmynd fólks. Draga fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði og samfélag að samfélagi.
Eins og nafnið gefur til kynna er ráðstefnan fyrir allt ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára.
Ekki þarf að vera í ungmennaráði eða ákveðnu félagi til þess að koma.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því borgar sig ekki að bíða of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára.
Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent verður út eftir viðburðinn.
Skráning er hafin og stendur til 8. september. Smelltu hér til þess að skrá þátttöku.
Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér á heimasíðu umfi.is.
Athygli er vakin á því að viðburðurinn er vímuefnalaus, það sama á við um
rafsígarettur og nikótínpúða.
Ráðstefnan er styrkt af Erasmus+.