8. september, 2026
Óflokkað

Óðal opnar 14. september næstkomandi og hefst þá formlega starfsárið 2026–2027.

Fyrst um sinn verður aðgengi í húsinu takmarkað vegna framkvæmda en unnið er að endurbótum á eldhúsrými og sjoppu og vonast er til að framkvæmdum ljúki sem fyrst.

Á meðan framkvæmdir standa yfir verða eftirfarandi breytingar á starfseminni:

  • Ungmennin munu ekki nota aðalinngang hússins heldur fara inn um inngangshurð inn í stóra salinn, kirkjumeigin.
  • Þar sem aðgengi að eldhúsi er ekki til staðar fellur hefðbundin sala úr sjoppunni niður þar til framkvæmdir hafa gengið frá.
  • Aðgengi að salernum verður áfram til staðar.
  • Mælst er til þess að nemendur á miðstigi og unglingastigi hafi með sér nesti og drykkjarföng á meðan framkvæmdir standa yfir.

Við biðjum gesti Óðals að sýna framkvæmdunum þolinmæði, hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Tengdar fréttir