2. júní, 2026
Allar fréttir

Hátíðleg útskrift fór fram í Hjálmakletti þann 28. maí þegar 14 börn útskrifuðust úr leikskólanum og eru nú að fara að stíga sín fyrstu skref í átt að nýjum ævintýrum í grunnskólanum. Athöfnin var bæði lífleg og skemmtileg, þar sem börnin buðu foreldrum, og aðstandendum upp á fjölbreytta dagskrá. Þau sungu, sögðu brandara og sýndu myndband. Að lokinni dagskrá var gestum boðið upp á veitingar þar sem tækifæri gafst til að eiga notalega samverustund og fagna þessum merkilegu tímamótum. Starfsfólk Klettaborgar er afar stolt af útskriftarhópnum og þakkar þeim kærlega fyrir yndislegan tíma saman. Börnunum er óskað velfarnaðar í næsta kafla og hlökkum við til að fylgjast með þeim vaxa og dafna í komandi framtíð.

Tengdar fréttir