
Eftir áramótin opnaði ný deild hér hjá okkur í Klettaborg. Seinustu vikur hafa börn og starfsmenn unnið að því að finna nafn á nýju deildina. Allar deildir leikskólans bera nöfn staðarheita úr bókum Astridar Lindgren. Í leikskólanum er deildin Sjónarhóll þar sem Lína langsokkur býr, Kattholt þar sem Emil býr og þriðja deildin ber nafnið Ólátagarður þar sem börnin í Ólátagarði búa. Börn og starfsfólk hafa því seinustu vikur verið að kynna sér sögur eftir Astrid Lindgren í þeim tilgangi að finna nafn á fjórðu deildina. Í vikunni hafa farið fram leynilegar kosningar á meðal barna og starfsmanna, þar sem kosið var á milli staðarheitanna, Matthíasarskógur, Kirsjuberjadalur og Skarkalagata. Niðurstöður kosninga komu í ljós í dag á degi leikskólans, öll atkvæði voru talin í sal leikskólans að viðstöddum börnum og starfsmönnum. Mjög mjótt var á munum og komu niðustöður í ljós við talningu seinasta atkvæðisins þar sem jafnt var á milli tveggja staðarheita áður en það kom upp úr kjörkassanum. Í kosningunni hlaut staðarheitið Skarkalagata bestu kosninguna og heitir fjórða deild leikskólans því Skarkalagata. Nú hefur því Lotta bæst í hóp sögupersóna úr sagnaheimi Astrid Lindgren sem eiga stað hjá okkur í leikskólanum Klettaborg.


