9. júní, 2026
Allar fréttir

Í vetur höfum við í Klettaborg tekið þátt í skemmtilegu og lærdómsríku þróunarverkefni með hinum leikskólunum í Borgarbyggð, í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Síðastliðinn fimmtudag var haldin uppskeruhátíð leikskólanna í verkefninu þar sem við deildum reynslu, sýndum afraksturinn og fögnuðum því sem hefur áunnist.

Áherslan hefur verið á að efla mál og læsi barna í daglegu starfi – því það eru ótal tækifæri til málörvunar í leik, samskiptum og samveru á hverjum degi

Við höfum staldrað við, rýnt okkar eigið starf, deilt hugmyndum og styrkt leiðirnar okkar til að styðja börnin enn betur. Þessi vinna hefur verið bæði gefandi og sameinandi fyrir starfsfólkið.

Hér geturðu skoðað afrakstur verkefnisins hjá okkur í Klettaborg

Við erum stolt af því sem hefur áunnist og hlökkum til að halda áfram að byggja á þessum góða grunni – með mál, tjáningu og vellíðan barnanna okkar í forgrunni.

Hægt er að lesa meira um verkefnið hér: Málörvun í daglegu leikskólastarfi

Tengdar fréttir